Styrmir Snær Þrastarson og Union Mons máttu þola tap gegn Heroes Den Bosch í BNXT deildinni í Hollandi/Belgíu, 89-70.
Á 25 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Styrmir Snær 8 stigum, 2 fráköstum, stoðsendingu og stolnum bolta.
Eftir leikinn eru Styrmir og félagar í 9. sæti deildarinnar með 18 sigra og 15 töp það sem af er tímabili.