spot_img
HomeFréttirNikola Mirotic fullur iðrunar

Nikola Mirotic fullur iðrunar

Spænski Svartfellingurinn og Chicago Bulls leikmaðurinn Nikola Mirotic reif í sundur þjóðfána Serbíu eftir leik Ítalíu og Spánar í dag í B-riðli Eurobasket 2015. Myndatökumaður RÚV náði atvikinu á myndband sem birt var á vef sjónvarpsins fyrr í dag.

 

Mirotic er fæddur í Svartfjallalandi en fluttist 14 ára til Spánar. Svartfjallaland sleit sig frá Serbíu árið 2006 með því að lýsa yfir sjálfstæði svo það er eflaust lítil ást milli þessarra þjóða.

 

Mirotic baðst afsökunar á Twitter eftir leikinn og sagðist fullur iðrunar eftir atvikið og hafi ekki áttað sig á því hvað hann hafi verið að rífa í sundur.

 

 

 

 

 

 

Fréttir
- Auglýsing -