spot_img
HomeNeðri deildir1. deild karlaNiðurstaða í sex agamálum - Adomas Drungilas í eins leiks bann ásamt...

Niðurstaða í sex agamálum – Adomas Drungilas í eins leiks bann ásamt tveimur öðrum

Aga- og úrskurðarnefnd KKÍ birti rétt í þessu niðurstöðu í sex agamálum sem henni höfðu borist til úrlausnar. Þrír þeirra er úrskurðað var um fengu eins leiks bann og þrír fá áminningu. Hæst ber líklega eins leiks bann leikmanns Tindastóls Adomas Drungilas fyrir háttsemi hans í leik gegn Álftanesi í Bónus deildinni þann 29. nóvember.

Hér fyrir neðan má lesa niðurstöður nefndarinnar:

Agamál 20/2024-2025

Með vísan til ákvæðis c. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Skarphéðinn Árni Þorbergsson, leikmaður Selfoss, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik Ármanns gegn Selfoss, sem fram fór þann 23 nóvember 2024.

Agamál 22/2024-2025

Með vísan til ákvæðis c. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Adomas Drungilas, leikmaður Tindastóls sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik Tindastóls gegn Álftanesi sem fram fór þann 29. nóvember 2024.

Agamál 25/2024-2025

Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Viktor Jónas Lúðvíksson, leikmaður KFG, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Selfoss gegn KFG, sem fram fór þann 2 desember 2024.

Agamál 26/2024-2025

Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Svavar Stefánsson, leikmaður Selfoss, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Selfoss gegn Sindra, sem fram fór þann 6 desember 2024.

Agamál 27/2024-2025

Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Tómas Þórður Hilmarsson, leikmaður Álftanes, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Álftanes gegn Stjörnunni, sem fram fór þann 6 desember 2024.

Agamál 28/2024-2025

Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Gunnar Ólafsson, leikmaður Fjölnis, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik Fjölnis gegn Þórs Akureyri, sem fram fór þann 6 desember 2024.

Fréttir
- Auglýsing -