Keppni í SAC riðli NCAA háskólaboltans í 2. deild er hafin hjá Ægi Þór Steinarssyni og félögum í Newberry háskólanum í Bandaríkjunum. Ægir og félagar máttu sætta sig við tap í opnunarleiknum eftir framlengingu gegn Lincoln Memorial, lokatölur 100-95 fyrir Lincoln.
Ægir var í byrjunarliðinu og lék lengst allra eða í 30 mínútur og skoraði 10 stig, gaf 5 stoðsendingar og var með einn stolinn bolta.
Minna fór fyrir Matthíasi Orra um daginn þegar Flagler skólinn lá gegn Lynn á útivelli en Flagler er ekki enn búið að spila sinn fyrsta leik í Peach Belt riðlinum en Ægir og Matthías leika báðir í 2. deild NCAA boltans.
Lynn 70-58 Flagler
Matthías Orri fékk lítið að spreyta sig í leiknum, lék aðeins í átta mínútur og náði ekki að skora.