spot_img

Nebojsa yfirgefur ÍA

Nebojsa Knezevic hefur látið af störfum hjá ÍA eftir að hafa þjálfað meistaraflokk félagsins síðustu tvö tímabil.

Með Nebojsa vann ÍA 21 af 49 af leikjum sínum í deild síðustu tvö ár og fór í úrslitakeppni 1. deildarinnar í vor þar sem liðið beið lægri hlut fyrir Fjölni.

Áður en hann kom til ÍA hafði hann þjálfað kvennalið Skallagríms og verið aðstoðarþjálfari hjá Vestra auk þess sem hann lék hátt í áratug, lengst af með Vestra/KFÍ og síðar Skallagrím.

Fréttir
- Auglýsing -