spot_img
HomeFréttirNBA: Wade skoraði 41 stig fyrir Miami

NBA: Wade skoraði 41 stig fyrir Miami

09:05 

{mosimage}

 

 

Dwyane Wade skoraði 41 stig, þar af 24 í síðasta leikhluta, þegar lið hans, Miami Heat vann Cleveland Cavaliers, 92:89, í bandarísku NBA körfuboltadeildinni í nótt. Shaquille O'Neal skoraði 17 stig áður en hann varð að yfirgefa völlinn vegna villuvandræða. LeBron James skoraði 17 fyrir Cleveland.

 

Þá vann Phoenix Suns sigur á San Antonio Spurs, 103:87. Þetta var 10. heimasigur liðsins í röð og 18. heimasigurinn í 19. leikjum á tímabilinu. Boris Diaw var stigahæstur heimamanna með 16 stig en Manu Ginobili skoraði 32 stig fyrir San Antonio, sem hefur tapað tveimur leikjum í röð.

 

Frétt af www.mbl.is

Fréttir
- Auglýsing -