spot_img
HomeFréttirNBA: Sjöundi sigur Detroit í röð

NBA: Sjöundi sigur Detroit í röð

08:54 

{mosimage}

 

 

Detroit Pistons vann auðveldan sigur á LA Clippers, 92:74, í bandarísku NBA körfuboltadeildinni í nótt. Chris Webber skoraði 19 stig og hirti 9 fráköst fyrir heimamenn í Detroit, en Cuttino Mobley skoraði 17 stig fyrir Clippers, sem söknuðu Elton Brand, besta liðsmannsins. Þetta var 7 sigur Detroit í röð í riðlakeppninni.

 

Tveir aðrir leikir voru í nótt. Utah Jazz vann Atlanta Hawks, 102,76, og Denver Nuggets vann Golden State Warriors, 123:111.

 

www.mbl.is

Fréttir
- Auglýsing -