spot_img
HomeFréttirNBA: Óvíst með Butler í kvöld

NBA: Óvíst með Butler í kvöld

14:45

{mosimage}
(Caron Butler er að spila sitt besta tímabil)

Caron Butler, framherji Washington, mun væntanlegai ekki spila með liði sínu í kvöld þegar þeir spila við New Jersey. Hann er með eymsli í mjóbakinu sem ollu því að hann missti af leik gegn Minnesota á sunnudaginn.

Butler sagði að bakið hefði verið að angra hann undanfarið og á sunnudaginn þurftu þeir að ferðast með rútu í yfir 200 km, vegna vandræða með tengiflug, og eftir það hafi bakið versnað. Hann spilaði ekki umræddan leik og Eddie Jordan, þjálfarinn hans, segir að ákvörðun með þátttöku hans í kvöld verður tekinn rétt fyrir leik.

Butler sagði að verkurinn væri orðinn það mikill að hann gæti ekki harkað hann af sér.

Caron Butler spilaði sinn fyrsta Stjörnuleik í vetur.

[email protected]

Fréttir
- Auglýsing -