18:29
{mosimage}
Einn leikur fer fram í úrslitakeppni austurstrandarinnar í NBA deildinni í nótt þegar New Jersy Net og Toronto Raptors mætast í sínum sjötta leik. Staðan er 3-2 New Jersey í vil og takist þeim að hala inn sigri í nótt eru þeir komnir áfram í undanúrslit austurstrandarinnar.
Leikur næturinnar fer fram í Continental Airlines Arena í New Jersey en Nets höfðu yfirburðasigur í fjórða leik liðanna 102-81 og óttast margir Vestanhafs að þar hafi Nets náð að brjóta niður Raptors en Chris Bosh og félagar verða að vinna í kvöld til að knýja fram oddaleik.