14:06
{mosimage}
Alonso Mourning hefur verið að íhuga það í tvo og hálfan mánuð hvort hann hætti að spila eða haldi áfram. Hann sagði að ákvörðun hjá honum myndi koma í ljós mjög fljótlega.
,,Ég hef ekki enn talað við fólkið sem ég þarf að ræða við,” sagði Mourning í gærkvöldi. ,,Ég hef góða tilfinningu fyrir Miami Heat og hvaða stefnu félagið er að fara.”
Talið er að Mourning muni ræða framtíð sína við Pat Riley.
Hann spilaði 77 leiki í fyrra og byrjaði inn á í 43 þeirra. Hann var með 8.6 stig og 4.5 fráköst í leik. Í úrslitakeppninni spilaði hann alla fjóra leiki liðsins og skoraði 6.3 stig í þeim.