17:00
{mosimage}
(McDyess spilar næsta tímabil í Detroit)
Joe Dumars, framkvæmdastjóri Detroit Pistons, fékk góðar fréttir í vikunni þegar Antonio McDyess sagðist ætla að vera áfram næsta tímabil. McDyess gat fengið sig lausan undan samningi frá Detroit en ákvað að vera áfram.
McDyess má eiga von á því að fá langan samning við Detroit næsta sumar en næsta verkefni hjá Detroit er að gera nýjan samning við Chauncey Billups sem fékk sig lausan undan samningi fyrr í mánuðinum. Hann gaf þó það út að það kæmi alveg til greina að spila áfram með Detroit.
Detroit hefur einnig ráðið fyrrverandi NBA-leikmanninn Michael Curry sem aðstoðarþjálfara.