spot_img
HomeFréttirNBA: Hörð barátta um úrslitasætin

NBA: Hörð barátta um úrslitasætin

11:32 

{mosimage}

 

 

New Jersey Nets vann Charlotte Bobcats 113:107, í framlengdum leik í bandarísku NBA körfuboltadeildinni í nótt en liðið berst við Orlando Magic og Indiana Pacers um áttunda og síðasta sætið í úrslitakeppni Austurdeildar. Hvorugt hinna liðanna lék í nótt.

 

Í Vesturdeildinni eru einnig mörg lið, sem eiga enn möguleika á einum af átta sætunum en þar hafa þrjú lið, Dallas, Phoenix og San Antonio. þegar tryggt sér sæti.

 

Úrslit annarra leikja í nótt voru þessi:

 

Philadelphia 93, Miami 85
Utah 118, Memphis 108
L.A. Clippers 111, Washington 105

 

www.mbl.is

Fréttir
- Auglýsing -