10:35
Derek Fisher er kominn ,,heim” en hann hefur samið að nýju við Los Angeles Lakers. Fisher var í meistaraliði Lakers sem vann síðustu 3 titla fyrir klúbbinn. Fisher sem fékk sig lausan undan samningi við Utah vegna veikinda dóttur sinnar skrifaði undir 3ja ára samning við Lakers sem mun færa honum 14 miljónir dollara. Vissulega fínn fengur fyrir Lakers en Fisher hefur ávallt þótt duglegur drengur og fyrirmyndar varnarmaður.