spot_img
HomeFréttirNBA: Chicago leitar annað

NBA: Chicago leitar annað

10:42

{mosimage}
(Bonzi fer kannski til Chicago)

Chicago Bulls eru að leita að öflugum skorara og voru þeir að reyna að fá hin spænska Pau Gasol frá Memphis. Þar sem að samningar náðust ekki og Gasol mun væntanlega klára tímabilið í Memphis hafa forráðamenn Chicago leitað annað.

Shareef Abdur-Rahim hjá Sacramento og Bonzi Wells hjá Houston hafa verið nefndir sem næstu skotmörk Chicago. Félagið vill fá öflugan skorara en er ekki tilbúið að láta mikið af hendi þess vegna náðust ekki samningar um Pau Gasol. Þeir hafa frest til 19:00 í dag að gera eitthvað og því verður spennandi að fylgjast með hvað gerist.

[email protected]

Fréttir
- Auglýsing -