07:00
{mosimage}
Þeir sem hafa áhuga á slúðrínu í NBA geta skemmt sér næstu daga. NBA-liðin fengu leyfi í gær til þess að ræða við leikmenn sem voru með lausa samninga. Þó má ekki gera neitt opinbert fyrr en 11. júlí þannig að fram að því verður mikið um vangaveltur.
Talið er að Vince Carter sé búinn að samþykkja nýjan samning við New Jersey, aðeins tveimur dögum eftir að hann fékk sig lausan. Nýji samningurinn mun vera til fjögurra ára og muni borga Carter $61.8 milljónir. Félagið muni svo hafa rétt til þess að framlengja hann um eitt ár einhliða.