23:30
{mosimage}
Samkvæmt AP hafa Detroit og Chauncey Billups komist að samkomulagi um nýjan fjögurra ára samning sem mun vera að andvirði $60 milljónir. Billups fékk sig lausan í síðasta mánuði til þess að vega og meta kosti sína.
Eftir þrjú ár af samningum getur Detroit ákveðið hvort þeir vilji halda honum út samninginn eða framlengt hann.
Billups vildi helst spila áfram hjá Pistons og sagði eftir að hann fékk sig lausan að ef Detroit gæti jafnað tilboð þeirra liða sem biðu í hann myndi hann vera áfram í bílaborginni sem hann gerði.