09:55
{mosimage}
(Hann virðist ætla að vera aðeins lengur í Minnesota)
Eigandi Minnesota Glen Taylor segir að félagið muni reyna að bæta liðið í sumar og byggja það í kringum Kevin Garnett. Randy Foye, Rashad McCants og Craig Smith eru einnig öruggir en aðrir leikmenn gætu farið í sumar til þess að bæta liðið.
Það er samt frekar erfitt að gera einhver skipti núna á meðan úrslitakeppnin er í gangi sagði Taylor ,,Það er samt frekar erfitt núna að tala við önnur lið,” sagði Taylor og bætti við ,,Við erum að skoða okkar möguleika og tækifæri.”
Óánægja Kevin Garnett hefur oft komið fram og óskir hans um að yfirgefa félagið. Hann hefur oft verið orðaður við New York og Chicago. Því eru þessi ummæli eiganda Minnesota annað hvort óskhyggja eða að hann hafi sannfært hinn 31 árs gamla Garnett að vera aðeins lengur.
Þó er kristaltært að Minnsota mun gera miklar breytingar á liði sínu í sumar.