Ísland mætir Ítalíu kl. 19:30 í Laugardalshöllinni í kvöld í þriðja leik undankeppni EuroBasket 2025. Til þessa hefur Ísland unnið Ungverjaland og tapað fyrir Tyrklandi í keppninni.
Tveir leikir verða leiknir í þessum öðrum glugga keppninnar, í kvöld gegn Ítalíu heima og svo úti gegn Ítalíu komandi mánudag. Undankeppninni mun svo ljúka í febrúar með tveimur leikjum, en þá mun Ísland mæta Tyrklandi heima og Ungverjalandi úti.
Þar sem efstu þrjú lið þessa fjögurra liða riðils munu komast áfram á lokamótið má segja að Ísland sé í dauðafæri að tryggja sig á það. Sigur gegn Ítalíu í kvöld er ekki nauðsynlegur til það verði að veruleika, en hann myndi þó fara langa leið með það ef af honum yrði.
Síðast þegar Ísland og Ítalía mættust á Íslandi var það árið 2022 í undankeppni heimsmeistaramótsins, en þá hafði Ísland sigur fyrir fullu húsi í Ólafssal í leik þar sem miðherjinn Tryggvi Snær Hlinason lék við hvern sinn fingur.
Miðasala á leik kvöldsins fer í gegnum smáforritið Stubb hér og þá verður hann einnig í beinni útsendingu á RÚV 2 frá kl. 19:20.
Leikur dagsins
Undankeppni EuroBasket 2025
Ísland Ítalía – kl. 19:30