spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaNáðu í sigur í Forsetahöllinni

Náðu í sigur í Forsetahöllinni

Höttur gerði sér lítið fyrir og vann heimamenn í Álftanesi í æfingaleik í Forsetahöllinni í kvöld, 87-100, en bæði lið undirbúa sig þessa dagana fyrir upphaf Bónus deildar karla næstu mánaðarmót.

Stigahæstur heimamanna í leiknum var Andrew Jones með 33 stig. Aðrir sem settu stig á töfluna fyrir Álftanes í leiknum voru Dimitrios Klonaras 20 stig, Viktor Steffensen 8 stig, Alexis Yetna 8 stig, Hörður Axel Vilhjálmsson 7 stig og Daði Lár Jónsson 6 stig. Aðrir skoruðu minna.

Fyrir Hött var Courvoisier McCauley stigahæstur með 23 stig. Þá bætti Matej Karlovic við 19 stigum, Nemanja Knezevic 15 stigum, Adam Eiður Ásgeirsson 12 stigum og Gustav Suhr-Jessen 10 stigum. Aðrir leikmenn skoruðu minna í leiknum fyrir Hött.

Fréttir og tölfræði úr æfingaleikjum má senda á [email protected]

Fréttir
- Auglýsing -