{mosimage}
Sveinn Blöndal er með Skallagrími í vetur, lék síðast með Ármanni/Þrótti, þar áður
með KR og KFÍ. Hann lék einmitt síðast í úrvalsdeildinni 2000-2001 með KFÍ, var þá
með 17,8 stig og 8,6 fráköst að meðaltali.
Á Valsmótinu gaf að líta gömul andlit og ný, þ.e.a.s að töluverðar hræringar hafa verið á leikmannamarkaðinum. Ungir sem aldnir ætla að láta að sér kveða og spennan magnast nú fyrir baráttuna í Iceland Express deildinni. Gunnar Freyr Steinsson var með myndavélina á lofti í Valsmótinu og smellti af þessum mynum af þeim sem hafa verið að færa sig til í sumar.
{mosimage}
Ari Gunnarssn lék lengi með Skallagrími, er nú kominn til Hamars/Selfsso.
{mosimage}
Bojan Bojovic lék með Haukum eftir áramót á síðasta tímabili, leikur nú með H/S.
{mosimage}
Guðni H. Valentínusson er kominn í Snæfell frá Fjölni.
{mosimage}
Keith Vassel er kominn aftur til landsins, lék lengst af með KR, eitthvað örlítið
með Hamri, en er nú spilandi þjálfari hjá Fjölni.
{mosimage}
Kevin Smith er til reynslu hjá Haukum.
{mosimage}
Lárus Jónsson er kominn aftur til Hamars eftir að hafa leikið með KR og Fjölni
undanfarin tvö ár.
{mosimage}
Patrick Oliver er nýr leikmaður Fjölnis.
{mosimage}
Ragnar Gylfason kom til Fjölnis fyrir tímabilið frá FSu.
{mosimage}
Roni Leimu er nýr leikmaður Hauka, kemur frá Finnlandi.
{mosimage}
Sigurður Þorvaldsson er kominn aftur til Snæfells eftir ársdvöl í Hollandi.
{mosimage}
Steinar Arason er kominn aftur á heimaslóðir í ÍR, en hann lék áður með Grindavík og
Skallagrími.
{mosimage}
{mosimage}
Myndir: Gunnar Freyr Steinsson – [email protected]