{mosimage}
Götuboltamótinu á Miklatúni í Reykjavík lauk í dag og var þátttaka í mótinu með besta móti að sögn mótshaldara. „Ég var mjög sáttur við mætinguna og við fengum æsispennandi lokaleiki í mótinu og það var töluvert um tilþrif, troðslur og varin skot,“ sagði Ívar Örn Sverrisson einn aðstandenda mótsins.
Sigurvegarar í flokki 15-17 ára karla var lið Ut´s skipað þeim Kjartani Ragnarssyni, Hjalta Friðrikssyni, Páli Fannari og Haraldi Valdimarssyni en flestir liðsmenn Ut´s urðu bikarmeistarar í 11. flokki karla fyrr í vetur þegar þeir bundu endi á áralanga sigurgöngu Njarðvíkinga í þessum flokki.
Í flokki 18 ára og eldri voru það Ármenningar sem urðu hlutskarpastir og var liðið skipað þeim Einari Huga Bjarnasyni, Reyni Kára Bjarnasyni, Páli Hólm Sigurðssyni og Halldóri.
Myndasyrpa frá mótinu í dag:
{mosimage}
{mosimage}
{mosimage}
{mosimage}
{mosimage}
{mosimage}
{mosimage}
{mosimage}
{mosimage}
{mosimage}
{mosimage}
{mosimage}
{mosimage}
{mosimage}