Í dramatíkinni í nótt þar sem að Villanova sigraði liði UNC á ótrúlegan hátt voru þeir Charles Barkley og Kenny Smith í vinnunni með sitt "körfuboltakvöld" þarna í vestra hafs. Á lokakaflanum gat Charles Barkley ekki hamið sig en um leið ekki horft á leikinn sjálfann. Sir Charles sem spilaði lungan af ferli sínum í Philadelphia þar sem Villanova er staðsettur hélt að sjálfsögðu með þeim en Kenny Smith spilaði með UNC á sínum tíma þannig að Barkley hafði vissulega ærna ástæðu til að fagna á meðan Kenny var fremur súr á svip. Sjá myndband hér að neðan.
Thrill of victory…
Agony of defeat. #NationalChampionship pic.twitter.com/GuEPbDfpDY
— NBA on TNT (@NBAonTNT) April 5, 2016