Gamla brýnið Pance Ilievski lenti í smá vandræðum með boltann í leik með KFÍ gegn Val og þurfti að láta skot vaða á svipstundu án þess þó að vita nokkurn vegin hvar hann var staddur. Kappinn var í raun nær miðlínu en þriggjastigalínunni og því í "Curry range" eins og talað er um þessa dagana.