Það er ekki á hverjum degi að íslenskir drengir upplifa þann draum að spila 1 á 1 við leikmenn úr NBA deildinni. Sá draumur rættist hinsvegar hjá Júlíus Orra Ágústsyni á Akureyri þegar hann fyrir algera slysni hitti á Jeremy Lin í ísbúðinni Brynju. Júlíus var í ísferð með móður sinni þegar hann hitti á kappann þar inni og innti hann eftir eiginhandaráritun og í kjölfarið bauð hann kappanum heim í leik.
Jeremy þáði boðið og leikurinn endaði 7-5 NBA stjörnunni í vil. Á heimasiðu Guðrúnar Gísladóttur móður Júlíusar gefur að líta myndband þar sem Júlíus er að skóla NBA stjörnunna sem þó náði að klóra fram sigur.
Mynd fengin af heimasíðu þjálfara þeirra Þórsara, Benedikt Guðmundssyni.