Njarðvíkingar styrkjast á ný nú í lokaleik Dominosdeildarinnar þegar þeir halda til Grindavíkur þar sem að Haukur Helgi Pálsson kemur aftur inn í liði eftir að hafa verið fjarverandi síðustu leiki vegna meiðsla. Vart þarf að fara yfir þann liðsstyrk sem Haukur kemur með sér inní liðið sem hefur tapað síðustu 3 leikjum sínum í deildinni. Og langri bið allra mun svo einnig ljúka á morgun að einhverju leyti því Stefan Bonneau mun vera í leikmannahópi Njarðvíkinga í fyrsta skipti í vetur.
Vera Stefan Bonneau hefur verið mörgum ráðgáta á meðan aðrir hafa verið nokkuð vissir að hann myndi spila með liðinu í úrslitakeppninni þrátt fyrir að aðeins fyrir 6 mánuðum sleit hann hásin. En Bonneau hefur samkvæmt heimildum verið duglegur í endurkomu sinni og bati hans verið ótrúlega góður. Þrátt fyrir að kappinn verði í búning á morgun má hinsvegar ekki búast við því að hann spili neitt samkvæmt öruggum heimildum úr herbúðum UMFN.
Dugnaðir og trú gera kraftaverk.4-5 klukkutímar á dag, mánuð eftir mánuð skila árangri #dominos365 #korfubolti #UMFN pic.twitter.com/GCPavlSlSN
— Teitur Örlygsson (@teitur11) March 9, 2016