21:47
{mosimage}
Jón Arnór Stefánsson og félagar í Valencia unnu góðan sigur á heimavelli ásunnudaginn þegar þeir tóku á móti Etosa Alicante 90. Jón Arnór lék í 32 mínútur ogskoraði 11 stig. Þetta er fyrsti sigur Valencia á tímabilinu.
Annan leikinn í röð var Pavel Ermolinskij í leikmannahópi aðalliðs Unicaja en þeirheimsóttu Akasvayu Girona 95 og töpuðu 90-98 en Pavel kom ekki við sögu í leiknum.
Það er ekki nóg með að Pavel Ermolinskij hafi verið í leikmannahópi Unicaja í dag
heldur lék hann nú í kvöld með varaliðinu, Axarquia gegn Beirasar Rosalia á
heimavelli. Heimamenn fóru með sigur 76-71 og skoraði Pavel 2 stig.
Damon Johnson og félagar í L'Hospitalet heimsóttu Palma Aqua Magica í kvöld og
sigruðu 88-83 og skoraði Damon 8 stig og gaf 4 stoðsendingar.
Helgi Freyr Margeirsson og Matthías Rúnarsson heimsóttu dönsku meistarana í Horsens IC á sunnudag og má segja að þeir hafi ekki sótt gull í greipar þeirra. Heimamenn sigruðu 84-64 og skoraði Helgi 4 stig á þeim 6 mínútum sem hann lék en Matthías komst ekki á blað.
Þá sigruðu lærisveinar Kevins Grandbergs í Glostrup sinn fyrsta leik í dönsku 1.deildinni þegar þeir sigruðu Skjold/Stevensgade 102-100 á heimavelli. Glostruptapaði fyrstu leikjum sínum á tímabilinu, gegn tveimur efstu liðum deildarinnar Herlev og Høbas. Kevin leikur einnig með liðinu.
Mynd: www.visir.is