Brandon Mobley leiddi Hauka til sigur í fjórða leik liðsins gegn Tindastóli í Síkinu í gærkvöldi. Mobley skoraði 16 stig og tók 16 fráköst og var skilvirknin slík að hún skilaði honum 24 framlagsstigum að auki. Þetta er annar leikurinn í röð sem hann hlýtur þessa nafnbót.