spot_img
HomeFréttirMikil eftirsjá í Danna

Mikil eftirsjá í Danna

Grindvíkingar hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þeir senda Daníel Guðna Guðmundssyni kveðju og þakka fyrir vel unnin störf hjá félaginu.  Í yfirlýsingunni kemur fram að þeir munu koma til með að sakna Daníels enda góður liðsmaður og óska honum alls hins besta. 

 

Yfirlýsingin í heild sinni: 

 

Eins og alkunna er tók Daníel G Guðmundsson við karlaliði Njarðvíkur nú á dögunum. Við hjá KKD Grindavíkur viljum fá að nota tækifærið og óska Njarðvíkingum og Danna að sjálfsögðu til hamingju með þessa ráðstöfun. Við eigum flottar minningar með Danna innan okkar raða og kunnum honum bestu þakkir fyrir tímann sem hann eyddi hjá okkur. Danni reyndist okkur góður liðsmaður og tók svo við kvennaliði okkar fyrir síðasta tímabil og leysti það verk frábærlega af hendi. Það er mikil eftirsjá í Danna en hver veit nema leiðir okkar liggi saman aftur. Við óskum Danna alls hins besta með lið Njarðvíkur og hlökkum til að mæta honum og hans sveinum á næsta tímabili.

 

Stjórn KKD Grindavíkur.

Fréttir
- Auglýsing -