Það er venjulega mikið um dýrðir á jóladag í NBA deildinni þar sem nokkur stærstu lið deildarinnar etja kappi í fimm leikjum frá hádegi til kvölds.
Síðasti jóladagur var engin undantekning, þar sem fimm leikir fóru fram og fór áhorf á þá alla fram úr væntingum deildarinnar samkvæmt vefmiðlinum BasketNews. Að meðaltali voru 5,25 miljón áhorfendur sem horfðu á leikina fimm innan Bandaríkjanna í gegnum ABC, ESPN, ESPN2, Disney+ og ESPN+ sjónvarpsstöðvarnar, en það er 84% heildaraukning áhorfs frá síðasta ári.
Mest fór áhorfið upp í 8,32 miljónir áhorfenda um miðjan leik tveggja stiga sigurs Los Angeles Lakers gegn Golden State Warriors. Sá leikur var einnig heilt yfir vinsælasti leikurinn, þar sem að meðaltali voru 7,76 miljónir að horfa á hann í sjónvarpinu.
Áhorfendatölurnar þetta árið eru þær hæstu í fimm ár, en fara þarf allt til ársins 2019 til þess að finna svipaðar tölur innan Bandaríkjanna. Þær eru þó fyrir utan áhorfstölur sem deildin býr til í gegnum streymisveitu sína NBA League Pass, en þar var horft á jóladagsleikina í 214 löndum á 60 tungumálum.