Martin Hermannsson og Alba Berlin lutu í lægra haldi gegn Baskonia í EuroLeague í kvöld, 80-57.
Á rúmum 23 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Martin 16 stigum, 2 fráköstum og 3 stoðsendingum, en hann var stigahæstur í liði Alba Berlin í leiknum.
Alba Berlin eru í 18. sæti deildarinnar eftir leikinn með einn sigur og fjögur töp að fimm umferðum loknum.