KR hefur fengið til liðs við sig nýjan erlendan leikmann í kvennaliðið. Sú nýja heitir Shannon McCallum og mun leysa af Patechia Hartman. Finnur Freyr Stefánsson þjálfari KR staðfesti þetta við Karfan.is.
,,Hartman glímdi bæði við meiðsli í hné og nára og svo vegna annarra meiðsla í liðinu ákváðum við að taka stærri leikmann sem gat skilað fleiri stöðum á vellinum,” sagði Finnur við Karfan.is.
Nú þegar þetta er ritað stendur yfir bikarleikur KR og Keflavíkur í Poweradebikarkeppninni þar sem KR konur eru án erlends leikmanns en vonast er til að McCallum verði klár í slaginn með röndóttum á næstunni.