spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaMátti þola tap gegn Peristeri

Mátti þola tap gegn Peristeri

Elvar Már Friðriksson og Maroussi máttu þola tap í dag gegn Peristeri í grísku úrvalsdeildinni, 73-79.

Elvar Már var á sínum vana stað í byrjunarliði Maroussi í leiknum og skilaði fimm stigum, tveimur fráköstum, fjórum stoðsendingum og stolnum bolta á tæpum 24 mínútum spiluðum í leiknum.

Eftir leikinn er Maroussi í 4.-9. sæti deildarinnar með fjögur stig.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -