spot_img
HomeFréttirMatthías og Kristinn ekki með ÍR í kvöld

Matthías og Kristinn ekki með ÍR í kvöld

Veikindi hafa rekið upp höfuðið í herbúðum ÍR en bakvörðurinn knái, Matthías Orri Sigurðarson verður ekki með í leik ÍR og Tindastóls kvöld vegna þessa. Þetta að viðbættum meiðslum Kristins Marínóssonar og Stefáns Karels gerir hópinn enn þynnri í þessum erfiða leik gegn liðinu sem spáð var af mörgum Íslandsmeistaratitlinum.

 

Kristján Pétur Andrésson, formaður kkd ÍR sagði í spjalli við Karfan.is að Kristinn verði samt klár í slaginn fyrir næsta leik gegn Skallagrími í Borgarnesi en það er afar mikilvægur leikur fyrir ÍR liðið. "Nú er tækifærið fyrir unga uppalda leikmenn að láta ljós sitt skína gegn sterku liði Tindastóls," bætti Kristján við að lokum.

 

Fréttir
- Auglýsing -