spot_img
HomeFréttirMatt Barnes keyrði 150 km til að berja Derek Fisher í klessu

Matt Barnes keyrði 150 km til að berja Derek Fisher í klessu

Memphis Grizzlies leikmaðurinn Matt Barnes keyrði 150 km vegalengd á laugardaginn, til þess eins að berja fyrr um liðsfélaga sinn hjá Los Angeles Lakers, Derek Fisher í spað. Jú þið lásuð rétt.

 

New York Knicks þjálfarinn hefur verið í sambandi við fyrrverandi eiginkonu Barnes undanfarið, eftir því sem haft er eftir heimildum vestan hafs. Barnes heyrði af því í miðjum æfingabúðum Grizzlies, hoppaði upp í bílinn sinn og renndi við hjá gömlu til þess að láta vaða í Fisherinn.

 

Heimildir herma einnig að Fisher hafi gert lítið úr málinu og muni ekki leggja fram kæru vegna atviksins, en hann mætti ekki á æfingu hjá Knicks á mánudaginn af "persónulegum ástæðum" en búist var við honum aftur á þriðjudaginn.  Formlegar skýringar voru á þá leið að hann væri í Los Angeles að hitta börnin sín en hann er nýskilinn við fyrrum eiginkonu sína til 10 ára.

 

NBA deildin hefur gefið það út að framkvæmd verði athugun á þessu atviki ásamt Knicks og Grizzlies, innan vébanda hennar.

 

Mynd: Barnes og Fisher kumpánalegir þegar allt lék í lyndi.

Fréttir
- Auglýsing -