Martin Hermannsson hóf leik í sterkustu deild evrópu, Euroleague í vikunni þegar lið hans Alba Berlín mætti rússneska liðinu Zenit Pétursborg.
Alba vann öruggan sigur í leiknum 85-65 þar sem Martin fór fyrir sínum mönnum. Þar endaði hann með 7 stig og 9 fráköst á þeim nærri 24 mínútum sem hann lék með Alba. Það helsta úr leiknum má finna hér að neðan:
Finnur Freyr Stefánsson þjálfari Horsens í Danmörku og fyrrum þjálfari KR benti á þá staðreynd á Twitter að Martin væri stoðsendingahæstur í deildinni eftir þessa fyrstu umferð. Hvort Martin nái að halda efsta sætinu verður að koma í ljós en frábært er að sjá Martin standa sig á stóra sviðinu.
Veit ekki með ykkur en mér finnst það gaman að @hermannsson15 sé að leiða Euroleague í stoðsendingum #korfubolti #euroleague #albaberlin pic.twitter.com/S7FBKZ4cD3
— Finnur Stefánsson (@FinnurStef) October 5, 2019