Martin Hermannsson og Valencia lögðu Gran Canaria í kvöld í ACB deildinni á Spáni, 91-62.
Eftir leikinn er Valencia í 5. sæti deildarinnar með 10 sigra og 6 töp það sem af er tímabili, en með sigri kvöldsins tryggðu þeir sig einnig inn í bikarkeppnina.
Á tæpum 22 mínútum spiluðum skilaði Martin fimm stigum, tveimur fráköstum og fimm stoðsendingum.
Næsti leikur Martins og Valencia í deildinni er þann 30. janúar gegn Tenerife.