Martin Hermannsson og Valencia máttu þola tap með minnsta mun mögulegum í framlengdum leik í kvöld í deildarkeppni EuroCup, 91-90.
Eftir leikinn er Valencia í 2. sæti deildarinnar með átta sigra og fjögur töp það sem af er tímabili.
Á 20 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Martin 9 stigum, frákasti og 4 stoðsendingum.
Næsti leikur Martins og Valencia í keppninni er þann 9. febrúar gegn Bologna.