Martin Hermannsson og Valencia lutu í lægra haldi fyrir Anadolu Efes Istanbul í EuroLeague fyrr í kvöld, 99-83. Eftir leikinn eru Valencia í 10. sæti deildarinnar með 14 sigra og 13 töp það sem af er tímabili.
Á tæpum 16 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Martin 4 stigum, frákasti og 3 stoðsendingum. Næsti leikur Valencia í EuroLeague er komandi fimmtudag 4. mars gegn Maccabi Tel Aviv.