Martin Hermannsson og félagar í Valencia lögðu Tenerife í kvöld í ACB deildinni á Spáni, 78-80.
Eftir leikinn er Valencia í 4. sæti deildarinnar með ellefu sigra og sex töp það sem af er tímabili.
Á 9 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Martin 2 stigum og 3 stoðsendingum.
Næsti leikur Valencia í deildinni samkvæmt skipulagi er 6. febrúar gegn Real Madrid.