Martin Hermannsson og Valencia lögðu Monbus Obradoiro í kvöld í ACB deildinni á Spáni, 91-71.
Eftir leikinn er Valencia í 5.-8. sæti deildarinnar með 8 sigra og 6 töp það sem af er tímabili líkt og Murcia, Baskonia og Tenerife.
Á tæpum 20 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Martin 6 stigum, 2 fráköstum og stoðsendingu.
Næsti leikur Martins og Valencia í deildinni er þann 29. desember gegn Tenerife.