Martin Hermannsson og Alba Berlin máttu þola tap í dag gegn Bayern Munich í þýsku úrvalsdeildinni, 77-53.
Martin lék tæpar 22 mínútur í leiknum og skilaði á þeim 4 stigum, 3 fráköstum, 4 stoðsendingum og stolnum bolta.
Með sigri í dag hefði Alba Berlin mögulega geta komist uppfyrir Bayern í efsta sæti deildarinnar, en þeir eru nú tveimur sigurleikjum fyrir neðan þá í 2. sætinu þegar þrjár umferðir eru eftir.