spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaMartin og Alba Berlin áfram í bikarnum

Martin og Alba Berlin áfram í bikarnum

Martin Hermannsson og Alba Berlin lögðu Crailsheim í dag í 16 liða úrslitum þýsku bikarkeppninnar, 74-75. Alba Berlin eru því komnir áfram í keppninni á meðan að Crailsheim eru úr leik.

Segja má að um endurkomusigur hafi verið að ræða fyrir Martin og félaga sem voru 15 stigum undir þegar liðin héldu til búningsherbergja í hálfleik. Martin átti fínan leik fyrir liðið, lék rúmar 26 mínútur og skilaði á þeim 10 stigum, 4 fráköstum og 5 stoðsendingum.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -