Önnur umferð þýsku Bundesligunnar fór af stað í gær með leik Alba Berlín og Hakro Merlins Crailsheim.
Martin Hermannsson var í byrjunarliði Alba líkt og í öllum leikjum tímabilsins til þessa. Berlín tók snemma forystuna og lét hana aldrei af hendi. Segja má að Alba hafi unnið ansi sannfærandi sigur að lokum, 115-76.
Martin var öflugur í leiknum og endaði með 14 stig auk þess sem hann hitti mjög vel eða fjórum af sex skotum sínum.
Alba Berlín ferðast til Frakklands í vikunni og mæta liði Limoges í EuroCup þann 17. október næstkomandi.