Martin Hermannsson og Valencia töpuðu í kvöld með minnsta mun mögulegum fyrir Gran Canaria í EuroCup, 89-90.
Eftir leikinn eru Valencia í 6. sæti B riðils með einn sigur og tvö töp það sem af er tímabili.
Á tæpum 24 mínútum spiluðum skilaði Martin 15 stigum, frákasti, 3 stoðsendingum og 3 stolnum boltum.
Næsti leikur Valencia í keppninni er þann 10. nóvember gegn Virtus Segafredo Bologna.