spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaMartin með 10 stig gegn Rasta Vechta

Martin með 10 stig gegn Rasta Vechta

Martin Hermannsson og Alba Berlin lögðu Rasta Vechta í kvöld í þýsku úrvalsdeildinni, 89-98.

Martin lék 23 mínútur í leiknum og skilaði á þeim 10 stigum, frákasti, 2 stoðsendingum og 2 stolnum boltum.

Eftir leikinn er Alba Berlin í 3. sæti deildarinnar með 12 sigra, 5 sigrum fyrir neðan Chemitz Niners sem eru í efsta sætinu, en Berlin á þrjá leiki til góða á þá í deildinni.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -