Martin Hermannsson mátti þola tap í kvöld gegn sínum gömlu félögum er lið hans Alba Berlin laut í lægra haldi gegn Valencia í EuroLeague, 66-81.
Martin lék tæpar 20 mínútur í leiknum og skilaði á þeim þremur stigum, þremur stoðsendingum og stolnum bolta.
Alba Berlin eru eftir leikinn í 18. sæti deildarinnar með fimm sigra og tuttugu töp það sem af er tímabili.