Íslenska landsliðið mun mæta Tyrklandi í Istanbúl kl. 13:00 á morgun sunnudag 25. febrúar í undankeppni EuroBasket 2025. Leikurinn er annar tveggja í þessum fyrsta glugga keppninnar, en næst leikur Ísland svo heima og heiman gegn Ítalíu í nóvember á þessu ári.
Karfan spjallaði við Martin Hermannsson leikmann Íslands um ferðalagið út, hvernig það sé að vera kominn aftur af stað með liðinu og leik morgundagsins gegn Tyrklandi.