Martin Hermannsson og Alba Berlin máttu þola fjögurra stiga tap gegn Bonn í úrvalsdeildinni í Þýskalandi í dag, 91-87.
Á tæpum 26 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Martin 16 stigum, frákasti, 8 stoðsendingum og stolnum bolta.
Lítið er liðið af þýsku deildinni, en það sem af er hefur Alba Berlin unnið einn leik og tapað tveimur.