Martin Hermannsson og Alba Berlin lögðu meistara Ulm í þýsku úrvalsdeildinni í dag, 98-88.
Martin lék rúmar 24 mínútur í leiknum og skilaði á þeim 13 stigum, frákasti og 9 stoðsendingum, en hann var næst framlagshæstur í liði Alba Berlin í leiknum.
Alba Berlin eru eftir leikinn í 3. sæti deildarinnar með 11 sigra og 5 töp það sem af er tímabili.