Marín Laufey Davíðsdóttir er körfuknattleiksmaður Hamars árið 2012. Hún er 17 ára og spilar fyrir Hamar sem bakvörður og miðherji. Marín er fyrirmyndar íþróttamaður og hefur sýnt fádæma keppnisskap og áræðni eftir erfið meisli sem héldu henni frá köfuboltavellinum nánast allt tímabilið 2010-2011. Þetta kemur fram á heimasíðu þeirra Hvergerðinga, Hamarsport.is.
Á heimasíðu Hamars segir einnig:
Marín lék með meistaraflokki Hamars sl. vetur og vakti þar strax athygli þrátt fyrir ungan aldur og var að endingu valin í U-18 ára landslið Íslands til þátttöku á Norðurlandamót sl. vor þar sem hún var byrjunarliðsmaður í öllum leikjum.
Hún er til fyrirmyndar utan vallar sem innan og stundar íþrótt sýna að mikilli kostgæfni. Marín á að baki 40 mfl. leiki í Íslandsmóti og þar af 29 í efstu deild. Í vetur er Marín með að meðaltali 17 stig og 10 fráköst í leikjum Hamars í 1.deildinni.